28.3.2011 | 07:23
Ekki gengur allaf vel.
Við Fía fórum á tvo hunda-viðburði um helgina.
Einstaklingar innan Retriverdeildarinna buðu upp á óformlegt veiðipróf á laugardaginn. Þetta var í annað sinn í mars sem svona veiðprófaræfingar fóru fram.
Þeir sem staðið hafa að þessu eiga mikið hrós og þökk skilið. Þetta hefur bæði verið óskaplega skemmtilegt, vel skipulagt og lærdómsríkt. Okkur Fíu gekk einganvegin eins vel á laugardaginn og í fyrra skiptið en það eru dagamundur á hundum og mönnum. Við Fía eigum líka mikið eftir ólært eru algjörir byrjendur og það er bara að því góða. Um að gera að hafa gaman af þessu og það er leikur að læra.
Á sunnudaginn hafði ég skráð okkur í Brons próf. Hlýðispróf. Skamst er frá því að segja að við komumst ekki í gegnum prófið, þó að við náðum samanlögðum stigum. Maður má ekki fá 0 í neinni æfingu þá er maður fallin. Ég hafði virkilega gott af að fara í þetta próf og sjá hvað ég á að vinna með. Veikasti hlekkurin okkar er taumlaus hælaganga, Fía dregst langt aftur úr mér, bara svona lallar áfram. Það verður seint sagt um hana Fíu mína að það sé æsingur í henni. En mikið vildi ég að það væri meiri hraði í henni. Hún er svo yndisleg, þæg og lærdómsfús EN bara svo hæg.
Um bloggið
Ingibjörg Friðriksdóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.